Hvaða lyf ég tek - skemmtilegt
Kvörtun og upplýsingar
Pirate afmæli hjá Maríönnu!
Á laugardaginn verður Maríanna Ástmarsdóttir 19 ára gömul og ætlar hún að halda uppá það með dálítilli veislu, þar sem hver maður skal klæðast sjóræningjarbúning. Við, vinkonur hennar og fáeinir vinir, ætlum að samgleðjast henni og mæta sem alls ekki prúðbúnir sjóræningjar með gjafir (hversu mikið sens sem það meikar). Undirbúningurinn hófst með litlu sætu boðskorti, en svoleiðis hef ég ekki fengið í fjölda ára, þakka þér kærlega fyrir kortið Mæja. Undirbúningurinn að gestanna hálfu hófst hinsvegar í Toys R Us, fyrr í vikunni. Þar var glens og þar var gaman og við vorum næstum því vinsamlegast beðnar um að koma aldrei aftur.
Það má segja að við séum ansi spenntar, og kannski einhverjir spenntir? En mér fannst við hæfi að blogga um þetta, og hvernig skal líta út eins og sjórængingja stelpa, ath stelpa, og hvernig skal haga sér sem sjóræningi.
Fatnaður.
Hárklútar, helst með beinagrindum á, rauðir, svartir, eða röndóttir. Ef enginn hárklútur er notaður, þá skal hárið vera mjög reitt og óreglulegt. Þið getið einnig notað lepp fyrir augað. Margir sjóræningjar misstu augað á sínum tíma.
Klæðist jarðlitum, dökkum litum og örlítið af rauðum með.
Hafið á ykkur gullna og grófa skartgripi. Suddalegt gat í nefið er flott og aðeins einn eyrnalokkur er algjörlega leyfður.
Verið skólaus, það er mjög sjóræningjalegt.
Hár,Húð og Farði.
Stílið hárið. Hafið það mjög villt, hellst hafið dredda, ef það er ómögulegt reynið að láta líta út fyrir að þið séuð með dredda. Ef það er ekki mögulegt, hafið hárið nógu úfið og reitt, óreglulegt og ósnyrtilegt... ekki skemmir fyrir að hafa það óhreint.
Reynið að vera sólbrún, með bronslitaða húð, og helst skítuga.
Augnskuggar skulu vera í jarðlitum, alls ekkert neon fyrir sjóræningjana. Svartur er leyfður og brúnn, og maskari (svartur eða brúnn).
Notið kynnalit, tveimur tónum dekkri en húðin ykkar, svo kynnbeinin sjáist vel (þá lítur út fyrir að þið séuð svangir sjóræningjar).
Sparið naglalakkið, sjóræingjar voru ekki með naglalakk! Helst hafið karlalegar og ósmekklegar neglur, og óhreinar með. Ef ykkur líður "allsber" án naglalakks, notið það sparlega, og helst glært.
Hegðun.
Hafðu sjóræningjalegan persónuleika. Hafðu sjóræningja áhugamál og hrósaðu sjóræningjalegu útliti þínu. Vertu hörð og láttu eins og þú sért svakalega vinsæl. Sjóræningjar eru alltaf ákafir og ófeimnir.
Talaðu mikið með höndunum. Vertu stollt og sterk! Stjóræningjastelpur koma í öllum stærðum og gerðum. Aldrei sparka, kýla né meiða neinn, nema notast sé við sverð eða gamlar byssur.
Drekktu romm. ROMM er málið!
-Sigríður Birna Matthíasdóttir.
Plan A (rís)
Plön eru að heltaka mig, Plan A, Plan B, Framtíðarplön, Plan Ö name it.
Ég var meirisegja búin að plana það að vakna snemma og drífa mig í að púla í ræktinni. En allt kom fyrir ekki og ég vaknaði kl hálf 1, át slátur og er búin að sitja hér síðan. En þá er aðeins eitt til ráða, að nota plan B. Það er þannig að ég mun sitja hér í dag án þess að klæða mig og finn mér eitthvað tilgangslaust að gera eins og að glugga í einhverja af öllum þessum bókum sem ég hef keypt mér, lesið svona 30 blaðsíður og skilið eftir merkimiða þar sem ég endaði síðast til þess að ég gæti lesið meira næsta dag... þær hafa aldrei verið lesnar síðan.
En út í allt aðra sálma, ég ætla að eyða tímanum í að skrifa niður plönin mín, kannski svolítið líkt því sem Lea gerði nema mitt er aðeins raunsæjara (þar sprakk draumurinn Ó HVAR ER DRAUMURINN syngur Lea !) Sorry en þú verður að opna augun og sjá raunveruleikann ástin, þú munt aldrei læra á munnhörpu né eignast mann sem elskar þig og Bob Marley.
Ekki taka beint skref sekúndurnar tifa ekki fara útaf brautinni þú verður að falla inn í hópinn. Áður en þú veist af verðuru týndur meðal fólksins. Vil ekki verða eins og fólk sem verður eldri og sér alls engan mun. Sögðu einhverjar væmnar skyttur en það er kannski einhvað til í þessu. Alltof mikið af fólki sem lifir alveg eins lífi og allir hinir því þannig var þeim kennt það. Það getur ekkert við því gert því að ekkert annað kemur til greina. Þetta kennir félagsfræðin, uppeldi uppeldi uppeldið er það sem gerir þig mest af því sem þú ert.
Ég var hins vegar alin upp af kolruglaðari kerlingu sem á það til að fara sýnar eigin leiðir til þess að setja smá lit í lífið. En það sem hún gerði aldrei var að klára námið sem henni langaði að læra og vinna við það, í staðin fór hún að unga út börnum og varð skrifstofukona... þvílíkt sóun á tíma.
Þetta er kannski eins og að kaupa sér jólatré og ráða því hvernig þú vilt skreyta það !

Ég vakna við að svitadropi lekur af enninu á mér, ojbarasta, ég hef aldrei fengið svitadropa, hver veit hvað það verður næst, naflakusk !? ég á frekar erfitt með að opna augun þar sem þau eru lýmd saman og það er eins og einhver haldi á lampa 5 cm fyrir ofan mig. Vá hvað mig klæjar undir höndunum, ojjj, aðrir svitablettir hvað er í gangi ! Ég ríf mig upp og opna augun. Aaah nú man ég, ég er bara í sólbaði í stórfenglega sundlaugargarðinum mínum. Þótt ég sérhæfi mig í innanhúsarktitekt leyfði ég mér að ganga einu skrefi lengra og fara smá útí garðarkitekt. 
Auðvitað bara fyrir mig eina, færi ekki að gefa neinum af þessum töfrum. Eða kannski ekki mig einni, því hundurinn minn hann Moli sem er kínverskur shar-pei og kettirnir mínir Vignir, Amadeus og Kristel sem eru allir eðal Síams, fá auðvitað að smakka á þessu öllu saman.


![]()
Kokkurinn minn hann Webster kemur út með silfurdisk fullan af appelsínusúkkulaði og mandarínubátum. Webster vinnur líka sem módel og “gistir” stundum heima hjá mér.
Ég er einhleyp og barnlaus, bý í meðalstóru húsi sem er hannað algjörlega eftir mínum smekk, þess vegna verður enginn karlmaður, hann myndi mjög líklega eyðileggja einhver smáatriði með svokölluðum “sínum hugmyndum”. Mig langar bara engan veginn í börn, þau geta verið fín en það er ekki einhvað sem ég sé sjálfan mig með eða langi einhvað sérstaklega í. Grenjandi barn með frekju plús uppeldi eru ekki beint innan áhugasviðs míns. Sjálf er ég ekki mikið skárri þannig að ég held að eitt smábarn sé nóg. Ég get ruslað til eins og ég vill án þess að mamma komi inn og segir mér að taka fötin upp af gólfinu. Ég geri það nákvæmlega þegar MÉR hentar. Enda væri það frekar erfitt fyrir hana þar sem hún er á köldu frónni og ég í Kaliforníu á minni eigin ekru nálægt Los Angeles.

Ég hringji nú samt í hana við og við og segji henni hvernig gengur.
Ég á ekki enn bíl, því það er ekki búið að finna upp högghelt lakk fyrir brussur eins og mig. En þangað til er ég að leigja mér Mustang.

En toppurinn er vinnan mín, ég elska og dýrka vinnuna mína, mér leiðist ekki, ég bíð ekki eftir tímanum, ég vakna og hrópa loksins loksins, hef minn tíma til að gera mig til og ENGINN segir mér að drífa mig. Eina manneskjan sem getur sagt einhverjum að drífa sig heima hjá mér er ÉG og það verður líklegast við hárgreiðsludömuna (það er ekkert gaman að gera í hár). Ég er búin að stútfylla minn kvóta af námi sem ég þarf í innanhúsarkitektinn og ferðast í leiðinni á milli landa til að sanka að mér upplýsingum og hugmyndum. Að sjálfsögðu dró ég einhverjar af stelpunum með mér sem vildu koma með

(nema þær sem eru komnar með barn og vildu endilega taka það með, no babies allowed !). Þær koma eins og þær vilja og láta eins og heima hjá sér, fá meiri segja Webster lánaðann (það verður engu kjaftað í eiginmanninn..lofa). Ég bjó líka til 4 mismunandi fataherbergji, hvert með sinn stíl frá sérstökum tíma þið megið líka nota þau (nema uppáhalds skónna mína).

Til skemmtunar mála ég myndir í góða veðrinu og safna í sýningar, drekk kokteila, versla mér föt, hitti og ferðast með stelpunum útum víðan völl. Ég gef mér ekki mikinn frítíma því að mér finnst hvort eð er svo drullugaman í vinnunni.

Auðvitað verður allt stútfullt af hamingju, gleði,
tani og spreði !
Sofnað og vaknað með brosi.
- Arís.
Hugi gefur hugmyndir
Ég get því miður ekki farið út úr húsi eins og er svo ég hef verið að skoða Huga, rosa gaman. Rakst á svona umræðu um nöfn, og maður hefur nú oftar en einu sinni rætt nöfn, ljót nöfn, flott nöfn, hlægileg nöfn og annað eins. Allir hafa smekk fyrir nöfnum býst ég við, allavega flestir, nema kannski pabbi hennar Emmu. Hann vissi ekkert hvað greyið átti að heita, ætlaði bara skýra hana Soffíu..
Mér finnst nokkur nöfn falleg, og mig langar að vita hvort mér eigi eftir að finnast það í framtíðinni, það kemur í ljós. En sum þeirra eru kannski "skrítin" og eflaust finnst einhverjum ykkar þau ljót. Endilega tjáið ykkur... Ég veit að Leu langar að skýra dóttir sína Marley, og hún á að vera svört. En ég ætla ekki að fara skýra börnin mín (ef ég eignast einhver börn) útlenskum nöfnum.
KK:
- Róbert
- Matthías
- Þorbjörn
- Reyr (sem eftir nafn)
- Þór (sem eftir nafn)
- Barði (finnst það örugglega bara svona flott útaf Barða Jóhannsyni)
- Rafn (sem eftir nafn)
- Berg (sem eftir nafn)
KVK:
- Sigurást
- Sigurrós
- Bjarnlaug
- Ísabella
- Veronika
- Björk (Örugglega bara útaf Björk Guðmunds)
- Brá (sem eftir nafn)
Ég undirstrikaði nöfnin sem mér finnst lang flottust. Skrítið hvað þetta breytist, mér fannst Matthías forljótt þegar ég var lítil og ég skammaðist mín fyrir að pabbi minn héti það hehe.. Ætla láta hugann reika á huga meira!!
- Sigríður Birna Matthíasdóttir ;)
brjalad stud
Það sem hefur dregið á daginn
Eftir að hafa skorið bein og blóð frá fiski allann morguninn gat ég ekki beðið eftir að komast heim í sturtu og drífa mig norður í hitann og áfengið. Þannig að við drifum okkur heim og lögðum af stað á vit ævintýranna. Á leiðinni lentum við næstum því framan á löggubíl eftir að Lea hafði verið nöldrandi í mér að taka frammúr tveim vörubílum fyrir framan mig í hálftíma. Eftir u.þ.b. fjagra tíma akstur stoppuðum við á Skagaströnd til að losa okkur við litla bróðir minn og fá okkur að éta, að sjálfsögðu stoppuðum við í Kántrýbæ. Það er ekkert lítið sem Hallbjörn kántrýkóngur hefur elst og bætt á sig frá því hann var vinsæll, svona fer frægðin með mann. En karlinn er enþá með útvarpstöðina í gangi, þessi gamla hetja gefst aldrei upp. Þegar komið var á Akureyri fundum við strax stað til að gera okkur til og byrja að sulla í okkur, það var ekkert búið að plana hvar við ættum að gista eða neitt áður en við lögðum af stað nefninlega. Þar var frekar skrautlegt fólk, þar á meðal nokkrar lessur sem voru ekkert ánægðar með að við tókum yfir baðherbergið. Allaveganna, næst fórum við niður í mið-bæ og hittum Óskar og töluðum við einhvað fólk. Svo eins og vanalega splittaðist hópurinn og ég og Lea enduðum saman inn á innganginum á Sjallanum. Keyptum miða en aðeins Lea komst inn því ég á ekki afmæli fyrr en í Október.. jæja sux2bme var hvort eð er dottin úr öllu stuði og þvagblaðran var farin að segja til sín þannig að við förum að leita af pissustað löbbum í nokkrar mínútur þar til Lea finnur þennann fína stað bak við tvo bíla og ég bara já ókey kúl,svo að ég labba að henni og sé einhvern gaur bak við húsið við hliðin á. Fannst eitthvað gruggugt við þetta og stari í smá stund því að maðurinn var með girt niðrum sig og svo sé ég bara munn á einhverjari gellu gang upp og niður. Þannig að ég bara gerði það sem venjulegri manneskju er skildugt og snéri mér við og benti Leu á kjötveisluhátíðina við hliðina á sér sem hún tók ekkert eftir. Jæja en við fundum stað til að mýga á, en þá var málið að finna stað til að gista á, þannig að við förum og finnum gaurinn sem við drukkum heima hjá og biðjum um gistingu hjá honum sem hann gaf leyfi fyrir, takk fyrir það btw. Það er ekkert meira að segja frá því kvöldi nema það að við tvær gistum í þvottahúsi, voða kósý stund hjá okkur Leu. Morguninn eftir reif Lea mig eldsnemma á fætur og við fórum að kaupa Brynjuís, þrifum bílinn minn og tjölduðum í garði hjá frænku hennar. Um kvöldið var ekki neitt djamm því Kristín Harpa hafði ælt úr sér görnunum, ég drulluþreytt eftir að Lea vakti mig og Óskar vildi bara fara heim í playstation. Lea var sú eina sem hafði orku í að drekka og endaði ein blindfull í frammsætinu hjá mér á rúntinum. Ég reyndi að sannfæra hana um að drekka mikið meira svo að hún myndi drepast svo ég gæti dregið hana inn í tjald til að sofa. En allt kom fyrir ekki, en við fórum þó í tjaldið en það var ekki runnið af Leu þannig að hún fór í göngutúr, ældi fyrir framan tjaldið og svaf í 2 tíma samtals (ég hraut víst eitthvað hátt). Ég nenni ekki að segja frá fleiru, gerðist ekkert merkilegt nema að við fórum heim. Er samt alveg sátt við ferðina þótt ég hafi ekki verið að drekka mikið, frekar bara kósý helgi á Akureyri full af hnökkum og feitum mat. En allaveganna þá setti ég inn myndir, en eins og kannski sumir taka eftir þá er ég dökkhærð þarna, en ég vil taka fram að þetta er EKKI liturinn sem ég bað um í klippingunni, soldið mikið dökkur miðað við það sem ég er vön og bað um að fá, læt laga þetta í vikunni so no judgements !
Annars er bara Gus gus og David Guetta á morgun, verður svaðalegt stuð þar !
Góða nótt.
Allt fyrir Sísí mína ;D
jæja í fyrsa lagi þá langar mig að geta lifað á ís og ekki fitnað en það er ekki kanski það besta fyrir mig svo ég sleppi þeirri ósk.
1. Mig langar að læra á munnhörpu.
2. Mig langar að hitta Bob Marley, dr. Martin Luther king jr. og 2Pac
3. Mig langar að hafa verið uppá hippa tímabilinu.
4. Mig langar að fá nokkur svört prik og þú, Sigga, veist víst allt um það ;D (engin skot hér takk, það lesa kanski fleyri en við vinkonurnar)
5. Mig langar í sítt, liðað hár sem mundi skipta um lit eftir árstíðum, rautt á veturnar og ljóst á summrin.
6. Mig langar að prófa að finnast súkkulaði gott en bara í einn dag.
7. Mig langar í grænn-gul augu.
8. Mig langar að flytja til Afríku og vinna í dýragarði og einhverju sem tengist því (þar get ég reynt við ósk nr. 4.)
9. Mig langar að skipta um nafn.
10. Mig langar að eiga bolabít.
11. Mig langar að kunna tala þýsku.
12. Mig langar að vita hvort ég hafi verið fiskur eða hippi í seinasta lífi.
13. Mig langar að flytja til Jamaica í ellini með með bestu vinkonunum minum eins og við ætluðum að gera þegar við vorum í 8 bekk, manstu Sigga, reykja okkur svo til dauða ;)
14. Kynnast einhverju sem elskar Bob Marley jafn mikið og ég geri og hlusta á Marley allan daginn út og inn.
15. Mig langar að prófa Mary Jane.
16. Mig langar í flottar neglur.
17. Mig langar í þræl.
18. Mig langar að sjá mig sofa.
19. Mig langar að kunna að tala eins og gettó fólkið.
20. Mig langara að fá Siggu heim :'(



